Venjulega koma Albanir með jólin til júróþyrstra aðdáenda á vesturhvelinu, en það bar til um þessar mundir að albanska sjónvarpið ákvað að halda Festival i Kenges, eða FiK eins og við þekkjum hana, þann 28. desember, en ekki daginn fyrir Þorlák eins og undanfarin ár. Allt í lagi, við erum alveg róleg. Fínt að fá […]
Flokkur: Eurovision
Það er nokkuð ljóst að rokkið deyr aldrei eins og Måneskin og Blind Channel sýndu og sönnuðu í fyrra. Og eins og alltaf, þegar ákveðin tónlistartegund vinnur Eurovision, er alltaf slangur af lögum í sama stíl árið eftir. Búlgarir ætla allavega að reyna að feta í fótspor sigurvegarana í fyrra og mæta með grjóthart og […]
Ó, elsku Júróárið er LOKSINS runnið upp með öllum sínum dásamlegu viðburðum og nýjum lögum í minningarbankana okkar. Keppnin í Rotterdam fór fram úr okkar björtustu vonum (svona að mestu leyti) því Ísland náði 4. sæti og við erum á leiðinni til Ítalíu. En nýtt ár, ný lög og aldrei þessu vant voru það ekki […]
Það hefur nú ekki farið framhjá neinum Eurovision aðdáanda að keppnin á næsta ári verður haldin í Tórínó á Ítalíu. Að vanda stendur félögum í FÁSES til boða að sækja um aðdáendapakka í gegnum OGAE International. Við höfum ekki upplýsingar á þessari stundu um verð eða fyrirkomulag miðasölunnar. Til að geta átt möguleika á að […]
Friðrik Ómar Hjörleifsson fæddist á Akureyri 4. október 1981 og fagnar því 40 ára afmæli í dag. Tónlistin hefur spilað stórt hlutverk hjá Friðriki síðan hann var barn. Stóri bróðir Friðriks, Halldór Gunnlaugur Hauksson, sem var hluti af Heart 2 Heart hópnum sem fór til Malmö 1992, er trommuleikari. Friðrik fór snemma að lemja húðirnar […]
Það fór svo að Ítalía með Måneskin og lagið „Zitti E Buoni“ vann Eurovision 2021 með alls 524 stigum. Mánaskinið var í fjórða sæti dómnefnda en burstaði símakosningu meðal almennings með stæl. Glæsilegur sigur fyrir eina af stóru fimmunum sem setti sjálfa keppnina á fót. Þetta er þriðji sigur Ítalíu, sá fyrsti að sjálfsögðu 1964 með laginu […]
Árið 2019 var þema keppninnar klárlega pólitík í Eurovision. Allir Eurovisionaðdáendur sökktu sér ofan í dæmi úr júrósögunni sem mátti setja pólitískt spurningarmerki við. Flestir þeirra komust síðan að þeirri niðurstöðu að vissulega sé pólitík mikil áhrifavaldur í þessari glyskeppni en það skiptir bara máli hvers konar pólitík. Hatari frá Íslandi veifaði palestínskum fána í […]
Þar sem Daði og Gagnamagnið brilleruðu algjörlega á blaðamannafundum hópsins getum við ekki annað en deilt upptökum af þeim með lesendum. Hitt og heilsað með Daða og Gagnamagninu 10. maí sl. Meet & Greet Iceland from Eurovision Song Contest 2021 on Vimeo. Blaðamannafundur Daða og Gagnamagnsins 13. maí sl. Press conference Iceland from Eurovision Song […]
Síðan 1999, þegar ný tungumálaregla gerði þjóðum kleift að syngja á hvaða tungumáli sem er var komið á, hafa einungis tvö sigurlög Eurovision verið flutt alfarið á öðru tungumáli en ensku og tvö innihaldið textabúta á öðru tungumáli en ensku. Auk þess hefur meirihluti framlaga hvert ár síðan þá verið á hinni útbreiddu ensku. Alltaf er […]
Þá eru fréttaritarar FÁSES búnir að koma sér vel fyrir í blaðamannahöllinni og eru tilbúnir að færa ykkur beina textalýsingu af dómararennsli fyrri undankeppni Eurovision í Rotterdam.
Það er klassík hjá vinahópum og vinnustöðum að skella saman í skemmtilegan Eurovision leik eins og veðbanka eða vínpott. Við á fases.is bjuggum til Eurovision leik sem er einfaldur og spennandi þar sem er hægt að spila upp á vín, snakk, nammi eða bjór eftir því hvað hentar hópnum. Fyrst þarf að byrja á að ákveða hvað […]
Eurovision-vikan er loksins komin eftir óvanalega langa bið. Þótt Eurovision sé nú haldið með öðru sniði og fáir áhorfendum í salnum í Rotterdam blæs FÁSES til heljarinnar Eurovision-viku í samvinnu við Kex hostel. Dagskráin er þétt og nóg í boði fyrir Eurovision-þyrsta aðdáendur. ATH: Nauðsynlegt er að skrá sig á þá viðburði sem áhugi er á að […]