Júróvision leikir fyrir vinnustaðinn


Það er klassík hjá vinahópum og vinnustöðum að skella saman í skemmtilegan Eurovision leik eins og veðbanka eða vínpott.

Við á fases.is bjuggum til Eurovision leik sem er einfaldur og spennandi þar sem er hægt að spila upp á vín, snakk, nammi eða bjór eftir því hvað hentar hópnum.

Fyrst þarf að byrja á að ákveða hvað er leyfilegt að leggja inn í pottinn til að gerast þátttakandi. Hægt er að hafa t.d. vín, bjór, sælgæti, snakk, nammi, gos eða hvað sem hugurinn girnist og jafnvel blanda saman.

Hér er hægt að nálgast þátttökumiðana til að prenta út sem þátttakendur draga þegar leggja inn verðlaunin í pottinn. Potturinn samanstendur þá af 39 þjóðum, ef þátttakendur eru fleiri en 39 er hægt að prenta út tvö sett af þátttökumiðum og hafa þá tvo vinninga fyrir hvert sæti. Ef það eru færri keppendur má t.d. nota bara þau 26 lönd sem komast í úrslit og sleppa vinningum fyrir undankvöldin.

Pottinum sem þátttakendur skila inn þarf að skipta svo í 7 vinninga. Þeir sem drógu landið sem lenti í fyrsta, öðru, þriðja, sextánda og síðasta sæti í úrslitunum og ellefta sæti í hvorri undankeppni fá þá vinninginn. Ef enginn þátttakandi hafði dregið landið sem varð í sætinu sem á vinninginn færist vinningurinn í næsta sæti fyrir neðan o.s.frv.

REGLUR

1. Byrja þarf á því að skipa stjórn pottsins. Stjórnin hefur ákvarðanatökuvald í vafamálum og skiptir pottinum í vinninga. Stjórnin sér svo um að tilkynna vinningshafa eftir að endanleg úrslit hafa verið kynnt eftir lokakvöldið.
2. Þátttakendur geta flestir verið 39, hægt er að tvöfalda pottinn og hafa vinningana þá 14 vinninga eða fækka í pottinum og hafa bara löndin 26 sem komast í úrslit og fækka vinningum í fimm.
3. Hver þátttakandi leggur til vinning í pottinn sem stjórnin hefur ákveðið og fær í staðinn að draga einn miða sem á er nafn einnar þátttökuþjóðar. Stjórn sjóðsins heldur utan um hver dregur hvaða land á yfirlitsblaði sem er hægt að nálgast Raudvinspottur_eurovision_2021 – FASES
4. Potturinn sem safnast er skipt í 7 vinninga (14 ef tvöfaldur pottur, 5 ef aðeins notuð löndin í úrslitum), Stjórn ákveður hvað er í vinning fyrir hvaða sæti. Skiptingin þarf að vera klár fyrir Eurovision. Stjórnin skal skipa fulltrúa innra eftirlits sem skal sjá til þess að skiptingin sé framkvæmd á óumdeilanlegan hátt.
5. Vinningarnir fara til þess lands sem lendir í þessum sætum:
– 1. sæti á lokakvöldinu
– 2. sæti á lokakvöldinu
– 3. sæti á lokakvöldinu
– 16. sæti á lokakvöldinu
– síðasta sæti á lokakvöldinu
– 11. sæti á fyrra undankvöldi (dettur út ef aðeins eru notuð löndin í úrslitum)
– 11. sæti á seinna undankvöldi (dettur út ef aðeins eru notuð löndin í úrslitum)
6. Fari svo að enginn hafi dregið það land sem lenti í sætinu sem hlaut vinning fær það land sem lenti í næsta sæti fyrir neðan viðkomandi vinning. Fari til dæmis svo að Ísland vinni, en enginn dró það Ísland, fær sá sem lenti í öðru sæti vinning fyrsta sætis. Sá sem lenti í þriðja sæti fær svo vinning þess sem átti að fá annað sæti. Ef keppt er upp á tvöfaldan pott og einungis einn dró viðkomandi land sem lenti í ákveðnu sæti fær hann allan pottinn fyrir viðkomandi sæti.