Af hærri jörð upp á hærri stól, já góðir hálsar, Danir eru búnir að velja sér lag. Eftir stórskemmtilega 10 laga keppni í Boxen í Herning kom það í hlut hinnar tvítugu Leonoru að bera Dannebrog til Ísrael. Rasmussen hvatti fólk til að taka stökk til hærri jörð í fyrra en allir með örlítinn grunn […]
Flokkur: Undankeppnir
Þýsku úrslitin fóru fram föstudagskvöldið 22. febrúar. Þjóðverjum gekk vel í fyrra, náðu 4. sæti með lagið You Let Me Walk Alone sem Michael Schulte flutti, en árin þar á undan voru mögur. Þeir hafa gefið út að þeir stefni á topp tíu í ár. Lögin voru ekki birt opinberlega fyrir keppni, eitthvað smávegis lak […]
Ungverjar velja sitt Eurovisionlag í kvöld, þegar úrslitin í lokakeppni A Dal fer fram. 30 lög hófu keppni í undanriðlum sem byrjuðu 19. janúar og eftir standa 8 keppendur. Þar á meðal eru kunnugleg andlit en András Kállay Saunders er að taka þátt í A Dal í fjórða sinn. Hann vann í fyrsta sinn sem […]
Litháen líkt og Ísland hefur aldrei unnið Eurovision. Þeir töldu þó í fyrra að þeir hefðu góða möguleika á toppsæti með hugljúfu lagi Ievu til eiginmanns síns When we’re old. Það gekk ekki eftir og lenti Ieva í 12. sæti sem er þó þriðji besti árangur Litháa í Eurovision. Best gekk þeim árið 2006 þegar […]
Nú styttist í að frændur okkar Danir velji sitt framlag fyrir Tel Aviv. Tíu lög keppa á morgun í Boxen í Herning á Jótlandi. Að þessu sinni er enga íslensku að finna, líkt og Rasmussen og hinir víkingarnir buðu okkur upp á í fyrra, sælla minninga. Línan Taka stökk til hærri jörð gleymist seint. En […]
Forkeppnin Evrovizijska Melodija (EMA) í Slóveníu fór fram síðastliðið laugardagskvöld. Tíu lög tóku þátt í keppninni og komust tvö stigahæstu lögin áfram í einvígi eins og við þekkjum í Söngvakeppninni hér heima. Stigahæst eftir fyrri kosninguna voru dúettinn Zala Kralj & Gašper Šantl með lagið Sebi og Sara Briški Cirman, sem er betur þekkt undir listamannsnafninu Raiven, […]
Tékkneska forkeppnin er ólík flestum öðrum forkeppnum Eurovision að því leyti að hún fer öll fram á netinu, þar sem lögin voru kynnt og kosningar fóru fram. Vongóðir væntanlegir keppendur sendu inn u.þ.b. 300 lög til tékkneskrar dómnefndar sem fór yfir þau og völdu að lokum 8 keppendur til að keppa um það hver færi […]
Eistar eru búnir að velja sitt framlag í ár og er það Victor Crone sem mun flytja lagið „Storm“ í Tel Aviv í vor. Eesti Laul, forkeppni Eista, vekur yfirleitt mikla athylgi á meðal aðdáenda enda mikið upp úr henni lagt og eru Eistar mjög metnaðarfullir þegar kemur að vali á sínu framlagi ár hvert. Hvorki […]
Dora, undankeppni Króata fyrir Eurovision, var haldinn í Opatija í gærkveldi. Undankeppni Króata hefur eitthvað legið í dvala síðustu ár og var þetta í fyrsta sinn í átta ár sem keppnin er haldin. Alls kepptu 16 lög um miðann til Tel Aviv í maí og fór valið fram með aðstoð símakosningar, sem gilti 50% og héraðsdómnefnda […]
Supernova, forkeppni Letta var siglt í höfn á laugardaginn og var það indie popp dúóið Carousel sem stóð uppi sem sigurvegari með lagið “That Night”. Fyrirkomulag keppninnar var með svipuðu sniði og víðast hvar annars staðar. Úrslitin réðust með helmingi símakosningar á móti dómnefnd og eftir æsispennandi keppni milli Carousel og júrósnúðsins Markus Rivas, sem […]
Montevizija, forkeppni Svartfjallalands er lokið og var það sönghópurinn D-Moll sem bar sigur úr býtum, eftir æsispennandi síma og dómnefndakosningu og mun flytja ballöðuna “Heaven” á stóra sviðinu í Tel Aviv. Svartfellingar blésu til sérdeilis flottrar keppni í ár og voru m.a með alþjóðlega dómnefnd sem samanstóð af fyrrum keppendum sem allir kannast við, en […]
Það var líf og fjör í Ástralíu á laugardaginn þegar Ástralar héldu sína fyrstu forkeppni fyrir Eurovision. Það var mikið lagt í keppnina enda mikill áhugi á Eurovision þar í landi. Það voru þau Myf Warhurst og Joel Creasey sem fóru á kostum sem kynnar og áttu marga góða spretti í gegnum keppnina. Það er morgunljóst að Ástralar […]