Hver er bestur í fjölskyldunni eða vinahópnum að spá fyrir um gengi laga í Eurovision? Hakaðu við þau lönd sem þú heldur að komist áfram og fáðu vini eða fjölskyldu til að taka líka þátt. Þú færð 1 stig fyrir hvert land sem kemst áfram. Hér er að finna stigatöflu FÁSES 2022.
Flokkur: Eurovision
Toto Cutugno söng um sameinaða Evrópu árið 1992 í sigurlagi sínu Insieme: 1992 í Eurovisionkeppninni 1990. Evrópa hefur ekki sameinast enn, en Evrópusambandið var stofnað þann 7. febrúar 1992, þannig að spár Totos rættust að vissu leyti. En Eurovisionkeppni númer 37 var haldin þann 9. maí 1992 í Malmö Isstadion í Svíþjóð eða fyrir nákvæmlega 30 árum. […]
Fyrir ári síðan héldu FÁSES í samstarfi við Kex Hostel Eurovision hátíð í skugga samkomutakmarkana og heimsfaraldurs þar sem gleðin og hamingjan skein af hverju andliti! Eurovision aðdáendurnir og FÁSES-liðarnir Guðný Matthíasdóttir og Róbert Hallbergsson ætla í samvinnu við Kex Hostel að endurtaka leikinn og eru búin að skipuleggja samáhorf á Eurovision. Á barnum verður tilboð á […]
Það fylgja hefðir Eurovisionjólunum eins og öðrum jólahátíðum. Þið þekkið þetta; tungumálapistill ársins birtist í gær, Júró-Gróa er á sínum stað og nú er komið að greiningardeild FÁSES að setja júróframlögin undir smásjána til að greina þemu þessa árs. Hljómsveitir Eins og Eurovisionaðdáendur þekkja vel hafa sigurlög Eurovision oftast áhrif á næsta júróárgang. Engin […]
Þá hefjum við fjórða æfingadaginn hér úti í blaðamannahöllinni í Tórínó. Og það engann smá dag því nú stíga á svið stóru löndin fimm; Frakkland, Ítalía, Bretland, Spánn og Þýskland. Af þessum fimm löndum sitja þrjú þeirra í topp fimm í veðbönkunum! Fylgist með beinni textalýsingu FÁSES af atburðum dagsins.
Júró-Gróa er sko hvergi af baki dottin þrátt fyrir að hafa nýtt tímann vel í að kynnast vínmenningu Piemonte héraðsins síðan hún lenti. Það er jú kominn eftirmiðdagur hér í Tórínó svo hún er búin að færa sig úr Lavazza kaffinu yfir í limonchelloið þar sem hún situr á kaffihúsi og mundar harðbeittan pennann við […]
Síðan 1999, þegar ný tungumálaregla gerði þjóðum kleift að syngja á hvaða tungumáli sem er var komið á, hafa einungis þrjú sigurlög Eurovision, ríkjandi sigurlag það nýjasta, verið flutt alfarið á öðru tungumáli en ensku og tvö innihaldið textabúta á öðru tungumáli en ensku. Auk þess hefur meirihluti framlaga hvert ár síðan þá verið á […]
Áfram höldum við að plægja akur seinni æfinga landanna í seinni undankeppni Eurovision og flytja ykkur helstu fréttir með beinni textalýsingu beint úr júróvisjónbúbblunni. Í dag æfa Ástralía, Kýpur, Írland, Norður-Makedónía, Eistland, Rúmenía, Pólland, Svartfjallaland, Belgía, Svíþjóð og Tékkland.
Önnur æfing Systra var í morgun og hún heppnaðist glimrandi vel. Eurovision.tv setti upp glæsilegar myndir af þeim og við stóðumst ekki mátið að deila þeim með ykkur. Myndir: EBU / Andres Putting
Um fátt hefur verið meira rætt í aðdraganda þessarar Eurovision keppni en norska framlagið Give That Woolf A Banana með Subwoolfer. Ástæðan? Enginn veit hverjir eru á bak við gulu úlfagrímurnar. Eða réttara sagt enginn þykist vita hverjir eru á bak við gulu grímurnar. Þegar norska framlagið var tekið fyrir í Alla leið um daginn […]
Þá er komið að fleiri þátttökuþjóðum Eurovision að stíga á Eurovisionsviðið öðru sinni í þessari vertíð og við munum að sjálfsögðu flytja ykkur glóðvolgar fréttir af gangi mála. Í dag æfa Ísland, Noregur, Armenía, Finnland, Ísrael, Serbía, Aserbaídsjan, Georgía, Malta og San Marínó.
Signore e signori! Ciao a tutti! Júró-Gróa heilsar frá ítölsku alpaborginni Tórínó, með Lavazza espresso í annarri hendi og beittan pennann í hinni, tilbúin að færa ykkur glóðvolgt slúður úr júróbúbblunni! Glöggir lesendur taka eftir því að Gróan hefur breytt um ásýnd frá bleiku kollunni sem hún skartaði í Rotterdam í fyrra. Er eitthvað sem lýsir […]