Margir voru hissa á staðarvali Breta fyrir Eurovisionkeppnina 1982, en hún var haldin í smábænum Harrogate þann 24. apríl eða fyrir nákvæmlega 40 árum. Keppnin var haldin í Harrogate International Centre og kynnir var Jan Leeming. Aldrei hafði verið meira um ljós á sviðinu í Eurovison og var nútímablær á þessu sviði – allavega miðað […]

Read More »

Á hverju ári framkvæma stærstu regnhlífarsamtök Eurovisionklúbba í heiminum, OGAE International, risastóra könnun sem nefnist OGAE Big Poll þar sem félagar aðdáendaklúbbanna velja sín eftirlætis Eurovisionlög í keppninni. Í dag voru stig FÁSES í OGAE Big Poll 2022 birt: Alls tóku 47 FÁSES-liðar þátt í könnuninni. Hægt er að fylgjast með stöðunni í OGAE Big […]

Read More »

Þá er komið að því að FÁSES.is kynnir síðasta Eurovisionframlagið 2022 fyrir lesendum sínum. Aserbaídsjan er ein þeirra þjóða sem er alltaf með síðustu skipunum að tilkynna lag sitt fyrir Eurovision. Í ár verður það Nadir Rustamli sem keppir fyrir Aserar með lagið Fade To Black. Hinum 22ja ára gamla Nadir hefur dreymt um að […]

Read More »

Bretar eru orðnir alveg mökkleiðir á ömurlegu gengi sínu í Eurovision undanfarin ár, og fengu alveg upp í kok í fyrra þegar þeir höfðu nákvæmlega ekki neitt upp úr krafsinu eftir símakosninguna… aftur. BBC fór í mikla naflaskoðun í framhaldinu og nú er bara aldrei að vita nema þeir hafi loksins fundið langþráð gullfræ. Það […]

Read More »

FÁSES er í óðaönn að undirbúa ferðalagið til Tórínó en við gefum okkur þó ennþá tíma til að kynna framlög ársins 2022. Nú skellum við okkur aðeins upp í hina ægifögru Alpa og skoðum hvað vinir okkar í Austurríki ætla að leggja fram í Pálínuboðið sem er Eurovision. Þann 11. mars sl., tilkynnti austurríska ríkissjónvarpið […]

Read More »

Í ár sendir Armenía söngkonuna og lagahöfundinn Rosu Linn í Eurovision. Þetta er endurkoma hjá Armenum eftir hlé, þeir ætluðu að taka þátt í keppninni 2021 en drógu sig úr henni í kjölfar þeirra krísu sem varð í landinu eftir Nagorno-Karabakh stríðið. Í stað þess að halda opna undankeppni gripu Armenar til þess ráðs að […]

Read More »

Fótboltamaðurinn Jérémie Makiese er keppandi Belga í Eurovision í ár. Hann er ekki aðeins afbragðsgóður markvörður sem er á samningi hjá fótboltaliðinu Excelcior Virton í belgísku 1. deildinni heldur vann hann einnig The Voice Belgique 2021. Jérémie vakti strax athygli í fyrstu umferð keppninnar fyrir frábæran flutning á laginu Jealous sem varð til þess BJ Scott […]

Read More »

Bom dia kæru lesendur og velkomnir, þó seint sé, til Portúgal og Festival de Cancaó 2022. Marsmánuður, eins og gefur að skilja, fór að mestu leiti undir íslensku Söngvakeppnina, en það voru einnig önnur lönd sem völdu sitt framlag þann 12. mars síðastliðinn. Þar á meðal var hið ægifagra land Portúgal, sem er eitt af þeim […]

Read More »