Lokakvöld Eurovision árið 2003 fór fram í Skonto Hall í Riga í Lettlandi 24. maí 2003 eða fyrir akkúrat 20 árum síðan. Alls tóku 26 þjóðir þátt og var því enn á ný sett þátttökumet. Úkraína var með í fyrsta skiptið þegar Oleksandr flutti lagið Hasta la vista. Allir keppendur voru að taka þátt í fyrsta […]
Flokkur: Eurovision
Eurovisionkeppnin 2013 fór fram í Malmö Arena 14. og 16. maí og stóra lokakvöldið 18. maí eða fyrir tíu árum síðan í dag. Fánagangan í byrjun var flutt undir tónlist sem var samin af Birni Ulveus, Benny Anderson og Avicci heitnum sem var staddur í salnum. Nýjung ársins var að keppendur drógu ekki lengur númer […]
Árið 1993 var Eurovisonkeppnin haldin í litlum bæ, Millstreet á Írlandi, nánar tiltekið í Green Glens Arena. Keppnin hefur aldrei verið haldin í minni bæ, en íbúafjöldinn var í kringum 1500. Húsnæðið tók þó 8.000 manns í sæti eða rúmlega fimmfaldan íbúafjölda. Í dag eru 30 ár síðan þessi keppni fór fram, þann 15. maí […]
Í kvöld rennur stóra stundin upp og eins og hefðin býður sendum við FÁSES-liðum skoðanakönnun til að kanna hvaða lag þau haldi að vinni Eurovision. Niðurstaðan var nokkuð afgerandi þar sem hinn finnski Käärijä sigraði með 59% atkvæða. Næst á eftir kom sænska drottningin Loreen með 35% atkvæða. Hin franska La Zarra og Blanca Paloma frá […]
Nú er staðan þannig að nágrannar okkar og vinaþjóðir, Svíar og Finnar, eru langefstir í veðbönkum þegar tippað er á sigurvegara Eurovision 2023. Þjóðirnar sjálfar eru ekki síður nágrannar og vinir. Helsingabotn aðskilur löndin að stærstum hluta en þau eiga svo landamæri á landi nyrst sem eru 555,5 km. Þjóðirnar hafa vissulega einnig tekist á […]
Halló halló! Gróan er nú aldeilis búin að dansa í stjörnufans síðan við heyrðumst síðast. Nú er báðum forkeppnum lokið og ekki laust við að Gróan sé með pínu kökk í hálsinum og vill bara þakka elsku Diljá og öllu teyminu hennar kærlega fyrir að vera svona miklir æðibitar. Þið eruð frábær, elskurnar mínar og […]
Venju samkvæmt sendum við skoðanakönnun á FÁSES-liða um hvaða lög munu komast áfram úr seinni undankeppninni í kvöld. Niðurstöðurnar eru klárar og FÁSES-liðar telja að þessi tíu lög muni koma upp úr umslögunum í kvöld: Ástralía Pólland Austurríki Ísland Slóvenía Belgía Danmörk Kýpur Litháen Armenía FÁSES-liðar telja því að Rúmenía, Eistland, Grikkland, Georgía, San Marínó […]
Það hefur að sjálfsögðu ekki farið fram hjá neinum að Eurovision í ár er haldið í M&S höllinni í Liverpool. Það er ekki úr vegi að spekúlera á léttum nótum hvar Eurovision yrði haldið á næsta ári ef Svíar, Finnar og Frakkar myndu sigra keppnina miðað við stöðu veðbanka í dag. Frakkar eru i þriðja […]
Venju samkvæmt sendum við skoðanakönnun á FÁSES-liða um hvaða lög munu komast áfram úr fyrri undankeppninni í kvöld. Niðurstöðurnar eru klárar og FÁSES-liðar telja að þessi tíu lög muni koma upp úr umslögunum í kvöld: Noregur Serbía Portúgal Króatía Sviss Ísrael Moldóva Svíþjóð Tékkland Finnland FÁSES-liðar telja því að Maltverjar, Lettar, Írar, Aserar og Hollendingar […]
Gróan heilsar alveg geislandi af gleði frá Englandshreppi og er satt að segja byrjuð að kippa svolítið, því í blaðamannahöllinni nýopnuðu er barasta boðið upp á fría Bailey´s kokteila! Jidúddamía hvað Gróan var glöð, því ekki er séð fyrir þörfum kaffiþyrstra þar á bæ. Eingöngu boðið upp á eitthvað þriðja flokks skyndikaffi og þá er […]
Í hverri Eurovisionkeppni má greina margs konar þema sem oft endurspeglar mikilvæg umræðuefni Evrópu hverju sinni. Í Eurovision keppninni 1990, sem haldin var stuttu eftir fall Berlínarmúrsins, fjölluðu 7 af 22 lögum um frið, frelsi, sameiningu eða fall múra. En hvað ætli árgangurinn sem nú er undirbúningi hér í höllinni í Liverpool beri helst með […]
Diljá Pétursdóttir lauk annarri æfingu sinni á stóra sviðinu í Liverpool í dag. Hér gefur að líta myndir frá EBU frá fyrstu æfingunni. Að sögn íslensku sendinefndarinnar gekk æfingin vel og allt á góðri leið fyrir stóru stundina í annarri undankeppninni 11. maí nk.