Króatar tóku fyrst þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1993 og gekk ansi vel fyrstu árin, lentu í 4. sæti árið 1996 og 1999 þá með hið stórkostlega lag Marija Magdalena og voru yfirleitt meðal efstu 10 þjóða þennan fyrsta áratug. Þau gullaldarár eru þó að baki og hefur Króatía ekki komist í úrslit síðan […]
Flokkur: Dora í Króatíu
Undankeppni Króata, Dora, fór fram í fjórða sinn þann 19. febrúar. Það var Mia Dimšić sem bar sigur úr býtum með laginu Guilty Pleasure. Um eins kvölds viðburð var að ræða þar sem 14 lög kepptu til sigurs en þau höfðu verið valin úr hópi 184 innsendra framlaga. Umgjörðin var hin glæsilegasta og gekk framleiðendum HRT vel […]
Dobra večer! Áfram rennur júróvertíðin og að þessu sinni bárust straumarnir til Króatíu, nánar tiltekið til borgarinnar Opatija, þar sem úrslitakeppnin Dora 2021 fór fram seinasta laugardag. Og að sjálfsögðu fylgdi smá balkneskt drama með í kaupbæti. En ekki hvað…
Það er búið að vera fremur dapurt yfir gengi Króatíu undanfarin ár. Seinast mörðu þeir það upp úr undankeppninni þegar tvískipti persónuleikinn Jacques Houdek fór í dúett við sjálfan sig í Kænugarði 2017. Hann gerði svo sem ekki gott mót eftir að í aðalkeppnina var komið. Króatar eru búnir að vera með í Eurovision sem […]
Dora, undankeppni Króata fyrir Eurovision, var haldinn í Opatija í gærkveldi. Undankeppni Króata hefur eitthvað legið í dvala síðustu ár og var þetta í fyrsta sinn í átta ár sem keppnin er haldin. Alls kepptu 16 lög um miðann til Tel Aviv í maí og fór valið fram með aðstoð símakosningar, sem gilti 50% og héraðsdómnefnda […]