Spá FÁSES fyrir kvöldið


Þá er stóri dagurinn runninn upp. Í kvöld fáum við að vita hver er sigurvegari Eurovision 2019 og verður gestgjafi keppninnar á næsta ári.

Að venju sendum við spurningalista til FÁSES-liða til að kanna hvern þau telja sigurstranglegastan í úrslitum Eurovision. Flestir telja að Holland muni vinna í kvöld og næstflestir telja Ísland standi uppi sem sigurvegari. Í 3. til 5. sæti í könnuninni eru Svíþjóð, Sviss og Ástralía.

  1. Holland
  2. Ísland
  3. Svíþjóð
  4. Sviss
  5. Ástralía

Kosningu meðal blaðamanna í Tel Aviv lauk klukkan 14:00 á íslenskum tíma og þar eru Hollendingar í fyrsta sæti, Svíþjóð í öðru, Rússland í þriðja, Ítalía í fjórða og Ísland í fimmta.

Kosning meðal blaðamanna í Tel Aviv. Skjáskot

Þegar þetta er skrifað klukkan 14:30 er staðan í veðbönkunum þannig að flestir veðja á að Holland vinni. Þar á eftir kemur Ástralía, Sviss, Svíþjóð, Ítalía og Ísland í sjötta sæti.

Skjáskot af Eurovisionworld.com stöðunni í veðbönkunum klukkan 14:30 þegar rúmlega fjórar klukkustundir eru í að úrslit Eurovision hefjist .

Ritstjórn FÁSES.is óskar ykkur öllum góðrar skemmtunar í kvöld! Sama hvernig þetta fer allt saman þá er eitt víst að þetta verður gott sjónvarp.