Fólkið á bak við Grétu: Fjöllistamaðurinn Jonathan Duffy

Flosi okkar settist niður með Jonathan Duffy leikara og grínasta með meiru til að ræða aðkomu hans að Eurovision atriði Íslendinga í ár. Jonathan er frá Melbourne í Ástralíu en rak á fjörur Íslands í september á síðasta ári. Hann kynntist Páli Óskari og vann myndbandið við lagið Gegnum dimman dal fyrir hann ásamt Ólöfu Erlu, grafískum hönnuði sem einnig er í Grétuteyminum í ár. Gréta Salóme leist svo vel á myndbandið að hún hafði strax samband við Jonathan. Þar með voru þeirra Eurovision-örlög ráðin! Nú eitt verkefni leiddi af öðru og nú er Jonathan t.d. með grínísta show með Hugleiki Dagssyni og kabarettsýningu með Heru Björk (sem verður einmitt frumsýnd í Stokkhólmi eftir viku!). Það má því segja að Jonathan hafi á þessum stutta tíma sínum hér á landi unnið með þremur Eurovision dívum – geri aðrir betur!

En áfram með Eurovision-smjörið! Jonathan fór með Gretu Salóme til Amsterdam og London þar sem hún kom fram á Eurovision kynningartónleikum. Þar gafst honum tækifæri til að sjá mörg lög live og hitta keppendur. Hann gjörsamlega elskar Kaliopi frá Makedóníu (hún lyktar eins og draumar að hans sögn!) og Amir frá Frakklandi (Mr. McDreamy í okkar huga). Jonathan er mjög ánægður með samvinnuna að Hear them calling verkefninu – þetta var mikil teymisvinna með Ásgeiri Helga, Gretu og Ólöfu Erlu (sem að hans mati er besti grafíski hönnuðurinn á Íslandi).

Á dagskránni eftir þetta Eurovision ævintýri er t.d. sýning í Ástralíu í desember auk þess sem Jonathan undirbýr trílógíugrínistashow sem verður sett upp í Iðnó og byggist á lífi hans sem húsmóðir þar sem hann þvældist milli smábæja í Ástralíu með lækninum eiginmanni sínum í 10 ár.

En nú er nóg komið af rausi – heyrum nú viðtalið!