Boðað er til 3. aðalfundar Félags áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, FÁSES, fimmtudaginn 30. október 2014 kl. 20:00. Fundurinn verður, líkt og áður, á Kringlukránni.
Seturétt á aðalfundi FÁSES hafa allir félagar sem greitt hafa félagsgjald fyrir árið 2014. Nánari upplýsingar um rétt félaga á aðalfundi er að finna í 7. gr. samþykkta félagsins. Núverandi samþykktir félagsins er að finna á heimasíðu félagsins www.fases.is.
Samkvæmt samþykktum félagsins er dagskrá fundarins eftirfarandi:
-
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
-
Skýrsla stjórnar kynnt og tekin til umræðu.
-
Reikningar félagsins kynntir, teknir til umræðu og kosninga.
-
Lagabreytingar.
-
Kosning til stjórnar.
-
Kosning félagslegra skoðunarmanna.
-
Önnur mál.
Auk skýrslu stjórnar og reikninga félagsins, verður hugsanlegt breytt fyrirkomulag við úthlutun miða rætt/tekið til umræðu undir lið 7 Önnur mál. Stjórn mun leggja fram nokkrar tillögur til umræðu. Fyrrnefndar tillögur ásamt reikningum og skýrslu stjórnar munu berast gildum félagsmönnum í síðasta lagi 25. október nk.
Kosningar til stjórnar og skoðunarmanna reikninga
Í ár lýkur kjörtímabili gjaldkera, alþjóðafulltrúa og kynningar- og viðburðarstjórnanda sem kjörnir voru til tveggja ára á 1. aðalfundi félagsins árið 2012. Kjörtímabilið eru tvö ár. Auk þess lýkur kjörtímabili 1. og 2. varamanns sem kjörnir voru á 2. aðalfundi félagsins árið 2013. Kjörtímabilið er eitt ár. Því verður kjörið í eftirfarandi embætti á fundinum:
-
gjaldkeri – kjör til tveggja ára
-
alþjóðafulltrúi – kjör til tveggja ára
-
kynningar- og viðburðarstjóri – kjör til tveggja ára
-
1. varamaður – kjör til eins árs
-
2. varamaður – kjör til eins árs.
Auk þess skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga til eins árs.
Kjörgengir í stjórn félagsins eru allir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald, en samkvæmt 6. gr. samþykkta félagsins þarf þó meirihluti stjórnar ávallt að vera 18 ára eða eldri.
Við minnum á að til að hafa atkvæðarétt á aðalfundinum okkar 30. október næstkomandi þarf félagsgjaldið að vera greitt.
Hlökkum til sjá ykkur öll á hressandi aðalfundi!