
Venju samkvæmt sendum við skoðanakönnun á FÁSES-liða um hvaða lög munu komast áfram úr fyrri undankeppninni í kvöld.
Niðurstöðurnar eru klárar og FÁSES-liðar telja að þessi tíu lög muni koma upp úr umslögunum í kvöld:
- Noregur
- Serbía
- Portúgal
- Króatía
- Sviss
- Ísrael
- Moldóva
- Svíþjóð
- Tékkland
- Finnland
FÁSES-liðar telja því að Maltverjar, Lettar, Írar, Aserar og Hollendingar komist ekki áfram upp úr undankeppninni í kvöld.
Þegar þetta er skrifað eru veðbankar hjartanlega sammála FÁSES-liðum. Það er áhugavert! Þá er ekkert eftir nema óska ykkur öllum ánægjulegs áhorfs í kvöld!

Veðbankaspá fyrir fyrri undankeppni 2023.