Filippseyskt R&B frá Austurríki


Austurríki var fyrst með í Eurovision árið 1957 og stefndu þeir á að senda sitt 53. framlag í ár. Þeir eiga tvö sigurlög að baki með ansi löngu millibili, flutt af Udo Jürgens 1966 og Conchitu Wurst 2014. Einnig vann Cesár Sampson dómnefndatkvæðin árið 2018 með laginu Nobody But You og endaði í 3. sæti. Austurríkismenn hafa líka átta sinnum verið í síðasta sæti og fjórum sinnum hafa þeir fengið núll stig.

Í desember síðastliðnum ákvað ORF, austurríska sjónvarpið, að velja Vincent Bueno til að flytja Eurovisionlagið fyrir Austurríki árið 2020. Það var því engin söngvakeppni þar í vetur. Lagið Alive var svo gert opinbert í byrjun mars. Lagið er eftir Vincent, David Ynag, Felix van Göns og Arthur Aigner.

Vincent, sem er 34 ára, er einnig þekktur undir listamannsnafninu Suitcase. Hann varð fyrst þekktur árið 2008 þegar hann vann söngvakeppnina Musica! Die Show! í Austurríki. Hann hefur síðan þá samið og sungið mikið af tónlist, mest R&B og er lagið Alive í þeim dúr. Foreldrar Vincents eru bæði frá Filippseyjum og hefur hann einnig búið þar undanfarin ár og unnið í tónlist. Austurríska sjónvarpið hefur nú þegar staðfest þátttöku landsins í Eurovision 2021 og að Vincent verði þeirra fulltrúi.