Í síðasta skiiiiiipti… með spekingunum en ekki Frikka Dór

Söngvakeppnin 2019

Þá er komið að lokasprettinum! Það er komin Söngvakeppnis-Þorláksmessa og spennan í hámarki. Eftir gærdaginn er Hatari enn á toppnum en Friðrik Ómar fylgir fast á eftir. Hér fáum við svo að heyra í spekingunum okkar í síðasta skiptið. Skellið nú myndbandinu í gang á meðan þið festið á ykkur leðurólarnar, slípið sjálflýsandi neglurnar, straujið hvítu gallabuxurnar, syngið Moving On í hárburstann og kærið ykkur kollótt um hvað mamma sagði. Gleðilega Söngvakeppni!

Staðan eftir dag fjögur*:

Bastien Konstantin Marco Paul Reynir Alls
Hvað ef ég get ekki elskað? 6 7 8 8 29
Mama Said 4 7 4 3 18
Fighting For Love 4 6 5 5 20
Moving On 2 8 10 5 25
Hatrið mun sigra 8 5 8 12 33

*Mistök urðu við uppfærslu stigatöflunnar í myndböndum 4 og 5 þar sem Fighting For Love með Töru Mobee er skráð með 4 stig frá Paul. Hið rétta er að Paul gaf laginu 5 stig og er stigataflan að ofan rétt. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum.