Hér með er boðað til 6. aðalfundar Félags áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, FÃSES, fimmtudaginn 26. október 2017 kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn á Ölveri í Glæsibæ.
Seturétt á aðalfundi FÁSES eiga allir félagar sem greitt hafa félagsgjald. Nánari upplýsingar um rétt félaga á aðalfundi er að finna í 7. gr. samþykkta félagsins. Núverandi samþykktir félagsins er að finna á vefsíðu félagsins www.fases.is.
Samkvæmt samþykktum er dagskrá fundarins eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar kynnt og tekin til umræðu.
- Reikningar félagsins kynntir, teknir til umræðu og kosninga.
- Lagabreytingar.
- Kosning til stjórnar.
- Kosning félagslegra skoðunarmanna.
- Önnur mál.
Kosningar til stjórnar og skoðunarmanna reikninga
Í ár líkur kjörtímabili formanns og ritara sem kjörnir voru til tveggja ára á 4. aðalfundi félagsins 2015. Þá hafa gjaldkeri og alþjóðafulltrúi, sem kjörnir voru til tveggja ára á 5. aðalfundi félagsins 2016 ákveðið að snúa sér að öðrum störfum eftir eins árs setu. Einnig líkur kjörtímabili 1. og 2. varamanns og félagslegra skoðunarmanna sem kjörnir voru til eins árs á 5. aðalfundi 2016. Því verður kjörið í eftirfarandi embætti á fundinum:
formaður – kjör til tveggja ára
ritari – kjör til tveggja ára
gjaldkeri – kjör til eins árs
alþjóðafulltrúi – kjör til eins árs
fyrsti varamaður – kjör til eins árs
annar varamaður – kjör til eins árs
tveir félagslegir skoðunarmenn – kjör til eins árs
Kjörgengir í stjórn félagsins eru allir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald, en samkvæmt 6. gr. samþykkta félagsins þarf þó meirihluti stjórnar ávallt að vera 18 ára eða eldri.
Við minnum einnig á að frestur til að greiða félagsgjald fyrir komandi starfsár er til 15. október.
Áhugasamir frambjóðendur eru beðnir um að senda framboð sín á netfangið ogae.iceland@gmail.com eigi síðar en 19. október með eftirfarandi í efnislínu: Framboð 2017.
Vinsamlega takið fram í hvaða embætti þið bjóðið ykkur fram í. Upplýsingar um framboð sem hafa borist verða send með fundargögnum 5 dögum fyrir fund.
Lagabreytingar
Samkvæmt 12.gr. samþykkta FÁSES skulu tillögur að breytingum berast stjórn 10 dögum fyrir aðalfund. Breytingatillögur skulu því sendast á netfangið ogae.iceland@gmail.com eigi síðar en 16. október með eftirfarandi í efnislínu: Lagabreytingar 2017. Innsendar breytingatillögur ásamt breytingatillögum stjórnar verða sendar með fundargögnum 5 dögum fyrir fund.
Í lok fundarins ætlum við að halda hefðina og spila hið sívinsæla Eurovision-bingo svo það verður líka stuð!