OGAE Second Chance 2017: Hin sænska Mariette sigrar – Daði Freyr í 9. sæti

Frá árinu 1987 hefur OGAE International staðið fyrir Second chance keppninni. Aðildarklúbbar OGAE geta tilnefnt eitt lag sem hefur tekið þátt í valferli Eurovision lagsins í þeirra landi. FÁSES tilnefndi í ár Daða Frey með lag sitt Is This Love? Sigurvegarar Second chance keppninnar frá því í fyrra, Pólland, voru gestgjafarnir í ár. Úrslitin voru tilkynnt í beinni útsendingu  frá Varsjá í gærkvöldi.

Sigurvegarinn í ár er hin sænska Mariette með lagið A Million Years með samtals 329 stig. Í öðru sæti var Ítalía með 209 stig og í þriðja Úkraína með 196 stig. Þetta er í 15. skipti sem Svíar fara með sigur af hólmi í Second chance keppninni. Daði Freyr okkar lenti í 9. sæti með 86 stig.

Á úrslitunum í gærkvöld kynnti Flosi Jón Ófeigsson niðurstöður rafrænnar kosningar meðlima FÁSES sem fram fór í sumar. FÁSES gaf Lettlandi 1 stig, Slóveníu 2 stig, Úkraínu 3 stig, Noregi 4 stig, Eistlandi 5 stig, Grikklandi 6 stig, Litháen 7 stig, Þýskaland 8 stig, Svíþjóð 10 stig og Ítalíu 12 stig. Hægt er að sjá upptöku frá úrslitunum á Facebook síðu Second chance.

Svíþjóð – Mariette – A Million Years – 1. sæti – 329 stig.

Ítalía – Paolo Turci – Fatti bella per te – 2. sæti – 209 stig

Úkraína – Tayanna – I Love You – 3. sæti – 196 stig

Ísland – Daði Freyr – Is This Love? – 9. sæti – 86 stig

Íslenskt lag hefur einu sinni unnið Second chance keppnina. Það var árið 2011 ári áður en FÁSES var stofnað. OGAE rest of the world tilnefndi lagið Nótt sem Jóhanna Guðrún flutti í Söngvakeppninni.

Heimasíða Second chance 2017

Stigatafla Second chance 2017:

Sæti Land Stig Flytjandi – Lag
1 Svíþjóð 329 stig Mariette – A Million Years
2 Ítalía 209 stig Paola Turci – Fatti Bella Per Te
3 Úkraína 196 stig Tayanna – I Love You
4 Slóvenía 189 stig BQL – Heart Of Gold
5 Litháen 135 stig Greta Zazza – Like I Love You
6 Spánn 124 stig LeKlein – Ouch
7 Noregur 119 stig Ella – Mama’s Boy
8 Grikkland 104 stig Demy – When The Morning Comes Around
9 Ísland 86 stig Daði Freyr – Is This Love?
10 Bretland 80 stig Holly Brewer – I Wish I Loved You More
11 Eistland 72 stig Kerli – Spirit Animal
12 Albanía 44 stig Dilan Reka – Mos Harro
13 Danmörk 43 stig Ida Una – One
14 Ungverjaland 39 stig Gabi Tóth & Freddie Shuman feat. Lotfi Begi – Hosszú Idők
15 Hvíta Rússland 32 stig NUTEKI – Take My Heart
16 Malta 32 stig Janice Mangion – Kewkba
17 Þýskaland 30 stig Axel Feige – Wildfire
18 Pólland 26 stig Carmell – Faces
19 Finnland 14 stig Zühlke – Perfect Villain
20 Lettland 9 stig My Radiant You – All I Know
21 Georgía (tilnefnd af OGAE Rest of the World) 1 stig Maliibu – We Live Once
22 Portúgal 1 stig Pedro Gonçalves – Don’t Walk Away