Takk María!

Ísland komst því miður ekki áfram í seinni undankeppni Eurovision sem haldinn var hér í Wiener Stadthalle í gærkveldi. Sterkur riðilinn varð okkur víst að falli að þessu sinni. FÁSES er ótrúlega stolt af Maríu, StopWaitGo og öllu flotta fólkinu okkar í Vín. Takk fyrir okkur og fyrir frábæra skemmtun! Hér að neðan má sjá ferðalag Maríu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

Nú höldum við FÁSES-liðar áfram og gleðjumst í partýi á laugardaginn!