Rauði dregillinn – MYNDIR

FÁSES mætti á opnunarhátíðina og rauða dregilinn í gær sem var glæsileg í alla staði. Rauði dregillinn var staðsettur fyrir utan Ráðhús Vínarborgar sem er einstaklega glæsileg bygging. Keppendur voru misfljótir að komast í gegnum haf blaðamanna og aðdáenda sem biðu spennt eftir að fá að bera keppendurna augum. María okkar Ólafsdóttir var ein af þeim löndum sem tóku sér nokkuð langan tíma að ganga niður dregilinn og verður FÁSES að segja að það sé mikið gæfumerki. Hún vakti mikla athygli og var vinsæl á meðal blaðamanna.

IMG_1211

Conchita Wurst mætti í þröngum kjól og með styttra hár en við erum vön. Hérna sést hún með Jon Ola Sand, Eurovision bossman, Edgar Böhm, Executive Producer, og einhverjum hressum nefstórum gaur.

 

 

IMG_1234

Hin spænska Edurne var stórglæsileg.

 

 

IMG_1274

Marta og Vaclav voru hress.

 

 

IMG_1289

María heillaði blaðamennina með fingurkossum.

 

IMG_1286

Måns var fallegasti maðurinn á svæðinu.

IMG_1311

Loic mætti með mömmu sína og hélt í hendina á henni stóran hluta tímans.

IMG_1226

Ann Sophie er búin að koma heldur betur á óvart hér í Vín og tókst að líta út fyrir að vera jafngömul og hún er. Vel gert!

IMG_1207

Finnarnir eiturhressir að vanda.

IMG_1203

Sykursætu strákarnir í Il Volo voru eitt vinsælasta landið.

 

IMG_1177

Múgur og margmenni voru mætt til að bera Eurostjörnurnar augum.

 

IMG_1142

Og sumir lögðu meira á sig en aðrir til að reyna að ná mynd af keppendum.