Venju samkvæmt hittust FÁSES meðlimir til að horfa á úrslit Melodifestivalen. Heitustu aðdáendur Eurovision voru þó í vandræðum því úrslitakvöld í norsku MGP keppninni var einnig þetta kvöld og því brugðið á það ráð að skipta á milli stöðva. Herlegheitin voru haldin á Kringlukránni og var blásið til Eurovision karaoke á eftir.
Viðstaddir spáðu fyrir um gengi laganna eftir flutning þeirra og áður en úrslit voru kunngjörð í Melodifestivalen. Niðurstaðan var sú að hetjurnar hans Måns myndu sigra og auðvitað gekk það eftir – FÁSES liðar eru nú ekki þekktir fyrir að hafa gott nef fyrir svona hlutum fyrir ekki neitt! FÁSES setti síðan Sting með Eric Saade í 2. sæti, Groupie með Samir & Viktor í 3. sætið og Möt mig í Gamla Stan með Magnus Carlsson í 4. sæti. Hin sæti voru kannski ekki alveg jafn rétt og það fyrsta, eins og sjá má hér, en hver er nú eiginlega að hugsa út í svoleiðis smáatriði. Heildarniðurstaðan er ef til vill sú að FÁSES liðar eru almennt mjög uppteknir af sænskum sjarmatröllum. Jafnvel má ganga svo langt að segja að nokkrir meðlimanna séu helteknir af pretty-boy þemanu sem iðulega má finna í Melodifestivalen en það er nú efni í annan pistil.
Var þá komið að fyrsta Eurovision karaoke á vegum FÁSES. Óþarft er að fara mörgum orðum um hvernig til tókst – það sló gjörsamlega í gegn. Svo dásamlegur var söngurinn að tveir kumpánlegir menn sem ráku nefið inn í salinn töldu að hér væru á ferð atvinnusöngvarar! Einnig ber að nefna að menn settu ekkert fyrir sig að taka að sér hlutverk bakradda og dansara, eftir því sem við átti í hverju lagi. Myndir sem teknar voru af kvöldinu má nálgast á facebook síðu FÁSES. Eitt er ljóst; Eurovision karaoke verður aftur á dagskrá hjá FÁSES.
Fyrir forvitna fylgir hér með lagalisti kvöldsins – nokkur óvænt númer sem fases.is hélt að enginn myndi velja eru á honum!
Lagalisti á fyrsta Eurovision karaoke kvöldi FÁSES