Fyrsti viðburður FÁSES þar sem rennt var í gegnum öll Eurovision framlögin gékk glimrandi vel og er ljóst að slíkur viðburður verður á dagskrá næstu árin. FÁSES er sérstaklega ánægt með hversu margir aðdáendur sáu sér fært að mæta og taka þátt í gleðinni.
Júró-stiklu áhorfendur fengu úthlutað landi og gáfu síðan framlögunum stig í samræmi við reglur keppninnar. Úrslit kosninga voru sem hér segir:
1. Svíþjóð 206 stig
2. Noregur 146 stig
3. Ítalía 132 stig
4. Danmörk 129 stig
5. Rúmenía 128 stig
6. Ungverjaland 109 stig
7. Ísland 102 stig
8. Lettland 97 stig
9. Armenía 93 stig
10. Holland 81 stig
11. Svartfjallaland 77
12. Finnland 72 stig
13. Bretland 68 stig
14. Grikkland 67 stig
15. Portúgal 65 stig
16. Þýskaland 64 stig
17. Malta 59 stig
18. Sviss 52 stig
19. Ísrael 50 stig
20. Frakkland 41 stig
21. Austurríki 37 stig
22. Azerbaijan 36 stig
23. Slóvenía 35 stig
24. Úkraína 34 stig
25. Eistland 31 stig
26. Hvítarússland 29 stig
27. Moldóva 28 stig
28. Pólland 27 stig
29. Spánn 18 stig
30. Írland 16 stig
31. Belgía 16 stig
32. San Marino 16 stig
33. Rússland 15 stig
34. FYR Makedónía 8 stig
35. Georgía 8 stig
36. Litháen 7 stig
37. Albanía 5 stig
Í lok kvölds heiðruðu Pollapönkarnir FÁSES með nærveru sinni og tóku nokkur lög við mikinn fögnuð áhorfenda, þó sérstaklega yngstu kynslóðarinnar.