Fyrsta æfing Gretu á sviði
Fyrsta æfing Gretu Salóme á stóra sviðinu í Globen fór fram í dag. Eins og Eurovision aðdáendur vita eflaust kom fram í Alla leið þætti RÚV að nota ætti nýja tækni fyrir atriðið á Globen sviðinu. Eftir æfinguna í dag er ljóst að sú er ekki raunin heldur hefur atriðið úr Söngvakeppninni verið fært upp á stóra sviðið með miklu öflugri grafík sem kemur mjög vel út.
Á æfingunni var Greta í nýja glæsilega búningnum sem frumsýndur var síðasta laugardag. Það má segja að hann sé delúx útgáfan af Söngvakeppnis-búningnum og við eru sko alveg að elska leðrið og pallíetturnar! Einhverjir örðugleikar tæknilegs eðlis voru að hrjá Gretu Salóme á æfingu í dag en auðvitað mun það slípast til í góðri samvinnu við sænska framleiðsluteymið hér í Globen. Áfram Greta!
Frábær tækni – af hverju ekki að nota hana?
Á blaðamannafundi eftir æfingu var fjöldi blaðamanna úr höllinni mættur til að taka á móti Gretu Salóme. Spurð um hvernig æfingin gekk sagði Greta Salóme að það væru nokkur atriði sem vinna þyrfti betur en óeðlilegt væri ef svo væri ekki. FÁSES.is spurði hvort það hefði áhrif á gengi lagsins og árangur þegar fleiri en einn keppandi reiðir sig á svipaða tækni, sérstaklega í atriðum þar sem tæknin spilaði stórt hlutverk. Að mati Gretu fer svarið eftir því hvernig þú skilgreinir árangur. Fyrir Gretu væri það góður árangur að koma boðskap lagsins á framfæri. Hann er sá að einblína og leggja áherslu á jákvæðu raddirnar í nærumhverfi okkar og hunsa þær neikvæðu. Ef Greta næði til einnar manneskju með þann boðskap væri það árangur fyrir henni.
Hún sagði einnig að sjónrænu brellurnar væru gerðar til að koma boðskapi lagsins á framfæri og það mætti segja að hvert einasta atriði í Eurovision notist við eitthvað sjónrænt ef út í það væri farið. Í raun eru sjónrænu tilburðirnir nýja Júró-brellan og ekkert sé nýtt undir sólinn. Allir eru að skapa sitt listaverk og það er ekki endilega að herma þó verið sé að nota eitthvað sem hefur sést áður. Þetta er að mörgu leyti mjög hentugt í keppni, þar sem einungis má hafa sex manns á sviði, að nýta þessa nýju grafíktækni til að gera atriðin stærri án þess að vera með fullt af fólki á sviðinu.
Nýtur sín meðal pressunnar
Það verður ekki annað sagt en að þetta hafi verið léttur og skemmtilegur blaðamannafundur og Greta Salóme átti ekki í neinum vandræðum með að svara spurningum fjölmiðlamanna. Reyndar var mikið hlegið enda er Greta frjáls og skemmtileg í tilsvörum. Hún sagði m.a. að Eurovision árið 2012 hefði snúist mikið um að komast áfram upp úr undankeppninni og ná góðu sæti í lokakeppninni. Nú snúist þátttaka hennar um að koma á framfæri boðskap lagsins og hún viti nú að Eurovision skilgreini ekki tónlistarmenn. Að hennar mati er ekki mikill munur á því að koma fram einn eða sem hluti af dúett eins og hún gerði með Jónsa í Baku. Nú er hún þó með allt Gretu-teymið með sér á sviðin sem hluta af grafíkinn (t.d. er Ásgeir Helgi skuggahöndin í henni). Svo er hún auðvitað með fimm bakraddir þó þær séu off-stage. Loks var mikið spurt út í Disney ævintýri Gretu Salóme og þá reynslu sem hún tekur með sér þaðan. Greta Salóme svaraði því til að ef hún hefði sagt að eitthvað hefði ekki verið hægt í sýningum á skemmtiferðaskipum Disney hefði svar samstarfsmanna alltaf verið; af hverju ekki?