Júróklúbbur FÁSES og RÚV 2025


FÁSES og RÚV í samstarfi við Pink Iceland, Saga Events og LUXOR kynna með stolti: Júróklúbbinn 2025 í Minigarðinum, eftirpartý Söngvakeppninnar 2025 – með Dj Huldu Luv úr Gagnamagninu!

Í gegnum árin hafa keppendur og gestaflytjendur Söngvakeppninnar lagt leið sína í eftirpartýið og mörg tekið lagið sitt fyrir aðdáendur. Við vonum að sem flest af þeim heimsæki okkur í Minigarðinn og haldi júrógleðinni áfram með okkur inn í nóttina. Kynnir kvöldsins er Agatha P.

Félögum í FÁSES gefst kostur á að bóka sér rútufar frá Gufunesi í Minigarðinn þegar þau kaupa miða á Júróklúbbinn.