Júróvision leikir fyrir vinnustaðinn 2022


Það er klassík hjá vinahópum og vinnustöðum að skella saman í skemmtilegan Eurovision leik eins og veðbanka eða vínpott.

Eins og í fyrra bjuggum við til leik sem er einfaldur og spennandi þar sem er hægt að spila upp á vín, snakk, nammi eða bjór eftir því hvað hentar hópnum.

Fyrst þarf að byrja á að ákveða hvað er leyfilegt að leggja inn í pottinn til að gerast þátttakandi. Hægt er að hafa t.d. vín, bjór, sælgæti, snakk, nammi, gos eða hvað sem hugurinn girnist og jafnvel blanda saman.

Hér er hægt að nálgast þátttökumiðana til að prenta út sem þátttakendur draga þegar leggja inn verðlaunin í pottinn og hér er yfirlitsblað til að halda utan um þátttakendur. Potturinn samanstendur þá af 40 þjóðum, ef þátttakendur eru fleiri en 40 er hægt að prenta út tvö sett af þátttökumiðum og hafa þá tvo vinninga fyrir hvert sæti. Ef það eru færri keppendur má t.d. nota bara þau 25 lönd sem komast í úrslit og sleppa vinningum fyrir undankvöldin.

Pottinum sem þátttakendur skila inn þarf að skipta svo í 7 vinninga. Þeir sem drógu landið sem lenti í fyrsta, öðru, þriðja, sextánda og síðasta sæti í úrslitunum og ellefta sæti í hvorri undankeppni fá þá vinninginn. Ef enginn þátttakandi hafði dregið landið sem varð í sætinu sem á vinninginn færist vinningurinn í næsta sæti fyrir neðan o.s.frv.

REGLUR

1. Byrja þarf á því að skipa stjórn pottsins. Stjórnin hefur ákvarðanatökuvald í vafamálum og skiptir pottinum fjórtán vinninga. Stjórnin sér svo um að ákvarða vinningshafa eftir að endanleg úrslit hafa verið kynnt eftir lokakvöldið
2. Þátttakendur geta flestir verið 40, hægt er að tvöfalda pottinn og hafa vinningana þá 14 vinninga eða fækka í pottinum og hafa bara löndin 26 sem komast í úrslit og fækka vinningum í fimm.
3. Hver þátttakandi leggur til eina rauðvínsflösku (má líka koma með hvítvín eða kippu af bjór) og fær í staðinn að draga einn miða sem á er nafn einnar þátttökuþjóðar. Síðasti dagur til að gerast aðili að sjóðnum er föstudagurinn 6. maí 2022 klukkan 18:00 CET (16:00 á íslenskum tíma) Stjórn sjóðsins heldur utan um hver dregur hvaða land á yfirlitsblaði sem er fylgiskjal með þessum reglum.
4. Flöskunum (eða það sem fólk vill hafa í vinning) sem safnast er skipt í 14 vinninga. Stjórn ákveður hvað er í vinning fyrir hvaða sæti. Skiptingin þarf að vera klár á föstudeginum 13. maí fyrir klukkan 18:00 CET (á íslenskum tíma 16:00). Stjórnin skal skipa fulltrúa innra eftirlits sem skal sjá til þess að skiptingin sé framkvæmd á óumdeilanlegan hátt.
5. Vinningarnir fara til þess lands sem lendir í þessum sætum:
– 1. sæti á lokakvöldinu
– 2. sæti á lokakvöldinu
– 3. sæti á lokakvöldinu
– 16. sæti á lokakvöldinu
– síðasta sæti á lokakvöldinu
– 11. sæti á fyrra undankvöldi
– 11. sæti á seinna undankvöldi
6. Fari svo að enginn hafi dregið það land sem lenti í sætinu sem hlaut vinning fær það land sem lenti í næsta sæti fyrir neðan viðkomandi vinning. Fari til dæmis svo að Ísland vinni, en enginn dró það Ísland, fær sá sem lenti í öðru sæti vinning fyrsta sætis. Sá sem lenti í þriðja sæti fær svo vinning þess sem átti að fá annað sæti. Fari svo að einungis einn hafi dregið viðkomandi land sem lenti í ákveðnu sæti fær hann allan pottinn fyrir viðkomandi sæti.