FÁSES tekur púlsinn á Gretu Salóme

FÁSES.is settist niður með Gretu Salóme eftir aðra æfingu hennar hér í Globen höllinni í Stokkhólmi. Æfingin gekk eins og í sögu – var algjör sleggja réttara sagt. Við vorum stödd inni í höllina meðan Greta æfði og var sérstaklega gaman að vera vitni að því að viðstaddir blaðamenn og aðdáendur klöppuðu og flautuðu fyrir frammistöðu Gretu.  

Fyrr á þessu ári birti Allt um Júróvisjón áhugaverða úttekt um kvenhöfunda í Söngvakeppninni. Árið 2012 þegar Greta Salóme keppti í Baku var í fyrsta skipti sem lag eingöngu eftir konu var framlag Íslendinga í Eurovision. Á árunum 20132015 voru kvenhöfundar í Söngvakeppninni á bilinu 2-4 í hverri keppni og því ekki veruleg breyting. Í ár var gjörbreyting á í Söngvakeppninni en átta konur eru höfundar, einar eða í teymi, sjö laga af 12 í keppninni og það í fyrsta skipti sem meirihluti laga í keppninni eru eftir konur. Ísland skorar oft hátt á jafnréttisskalanum og jafnrétti kynjanna telst með því betra í heiminum hér á landi. Þrátt fyrir það er greinilegt að konur bera skarðan hlut frá borði í Söngvakeppninni, hvort sem ástæðan er að þær sendi ekki lög inn eða þær séu síður valdar. Okkur leik forvitni á að vita hvað Gretu Salóme finnst um þessa stöðu en hún er einn stofnenda KÍTON, félag kvenna í tónlist.