Sérfræðingapanell FÁSES: Hver fær alslemm?

Þá er komið að síðari hluta sérfræðingapanel FÁSES en þá verður farið yfir lögin Paper, Is this love?, Hypnotised og Bammbaramm.

Niðurstöður sérfræðinganna voru:

Paper – Svala fær 5 stig frá Ástríði, 5 stig frá Steinunni og 5 stig frá Ísak. Uppáhaldsummælin okkar: Sigurstranglegasta lagið by far!

Is this love? – Daði Freyr 5 stig frá Steinunni, 4 stig frá Ísak og 4 stig frá Ástríði. Uppáhaldsummælin okkar: Uppgötvun ársins! Kemst á lista yfir topp 5 bestu Söngvakeppnisatriði ever!

Hypnotised – Aron Brink fær 1 stig frá Ísak, 4 stig frá Ástríði og 1 stig stig frá Steinunni. Uppáhaldsummælin okkar: Atriði sem kemst á stall með atriðum úr Melodifestivalen!

Bammbaramm – Hildur fær 4 stig frá Ástríði, 4 stig frá Steinunni og 4 stig frá Ísak. Uppáhaldsummælin okkar: Svona skemmtilegt krúttpopp!

Niðurstöður sérfræðinganna eru því þær að Svala nær toppsæti með 15 stig og í öðru sæti er Daði Freyr með 13 stig.