Aðalfundur FÁSES 2016

Boðað er til 5. aðalfundar Félags áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, FÁSES, miðvikudaginn 26. október 2016 kl. 20:00 á Ölveri. Sjá facebook-viðburð. Seturétt á aðalfundi FÁSES hafa allir félagar sem greitt hafa félagsgjald. Nánari upplýsingar um rétt félaga á aðalfundi er að finna í 7. gr. samþykkta félagsins. Núgildandi samþykktir félagsins er að finna hér.

Samkvæmt samþykktum félagsins er dagskrá fundarins eftirfarandi:

1.Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2.Skýrsla stjórnar kynnt og tekin til umræðu. 3.Reikningar félagsins kynntir, teknir til umræðu og kosninga. 4.Lagabreytingar. 5.Kosning til stjórnar. 6.Kosning félagslegra skoðunarmanna. 7.Önnur mál.

Kosningar til stjórnar og skoðunarmanna reikninga Í ár lýkur kjörtímabili gjaldkera, alþjóðafulltrúa og kynningar- og viðburðastjórnanda sem kjörnir voru til tveggja ára á 3. aðalfundi félagsins árið 2014. Kjörtímabilið eru tvö ár. Auk þess lýkur kjörtímabili 1. og 2. varamanns sem kjörnir voru á 4. aðalfundi félagsins árið 2015. Kjörtímabilið er eitt ár. Því verður kjörið í eftirfarandi embætti á fundinum:

gjaldkeri – kjör til tveggja ára

alþjóðafulltrúi – kjör til tveggja ára

kynningar- og viðburðastjórnandi – kjör til tveggja ára

1. varamaður – kjör til eins árs

2. varamaður – kjör til eins árs.

Auk þess skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga til eins árs.Kjörgengir í stjórn félagsins eru allir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald, en samkvæmt 6. gr. samþykkta félagsins þarf þó meirihluti stjórnar ávallt að vera 18 ára eða eldri. Áhugasamir frambjóðendur eru beðnir um að senda framboð sín á netfangið ogae.iceland@gmail.com með eftirfarandi í efnislínu: Framboð 2016. Vinsamlega takið fram hvaða embætti þið bjóðið ykkur fram í. Upplýsingar um framboð sem hafa borist verða send með fundargögnum.

Vonumst til að sjá sem flesta!