Til hamingju Svíþjóð frá FÁSES Nú er Eurovision 2015 lokið með sigri Svía. Margir vilja meina að nú taki við hið svokallaða PED (Post-Eurovision-Depression), en til að koma í veg fyrir að það gerist alveg strax eru hér nokkrar skemmtilegar og áhugaverðar staðreyndir um úrslitin í ár. Undankeppnirnar Lettland komst í fyrsta skiptið í […]
Month: May 2015
FÁSES kíkti í smá heimsókn í Eurovision Village, en það er staðsett á ráðhústorginu hér í Vín. Veðrið var nú ekki upp á marga fiska, rigningarsuddi eins og við Íslendingar viljum kalla það. Þrátt fyrir hálf leiðinlegt veður þá var slatti af fólki á svæðinu. Þegar við komum á svæðið var verið að sýna brot […]
FÁSES.is er búin að nýta Eurovision vikuna í margt og mikið – m.a. til að spjalla aðeins við FÁSES-meðlimi sem koma hvaðanæva að úr heiminum. Við báðum Bastien Venturi frá Sviss og Dekel Ben Avi frá Ísrael að segja okkur hvaðan Eurovision áhuginn kemur. Bastien Believe it or not, but I am so fond of ballads […]
ORF, ORF, ORF – þriggja stafa skammstöfunin sem allir eru að tala um hér í Vín. Enn berast Júró-Gróu sögusagnir af handritabreytingum á síðustu stundu, handritaleysi og ósamstarfsfúsum leikstjóra sem heldur 40 Eurovision-atriðum í gíslingu (vanalega eru tveir leikstjóra, bara einn í ár). FÁSES-liðar drukku Finna undir borðið á miðvikudagskvöldið og þurfti að bera Finnana í […]
FÁSES.is settist niður með sérfræðingunum Steinunni, Kristján og Ísak og spáði í spilin fyrir kvöldið. Nú hefur röð stigagjafa, þ.e. í hvaða röð löndin munu gefa stigin sín, verið gefin upp og getur það gefið góðar vísbendingar um hvernig kvöldið í kvöld mun fara. Þessi röð stigagjafa byggir á svokölluðu dómararennsli sem var í gærkveldi þar […]
Advania stóð fyrir skemmtilegum morgunverðarfundi í morgun. Ástæðan fyrir því að við fjöllum um morgunverðarfundi hjá upplýsingatæknifyritækjum hér hjá okkur í FÁSES er auðvitað sú að fundurinn fjallaði um Eurovision! Á mælendaskrá fundarins voru þrír, þeir Kristinn Jón Arnarson ritstjóri vodafone.is, Felix Bergsson og Gunnar Steinn Gunnarsson hjá Advania. Fundarstjóri var svo Sigrún Eva Ármannsdóttir […]
Ísland komst því miður ekki áfram í seinni undankeppni Eurovision sem haldinn var hér í Wiener Stadthalle í gærkveldi. Sterkur riðilinn varð okkur víst að falli að þessu sinni. FÁSES er ótrúlega stolt af Maríu, StopWaitGo og öllu flotta fólkinu okkar í Vín. Takk fyrir okkur og fyrir frábæra skemmtun! Hér að neðan má sjá ferðalag Maríu […]
Gríska ríkissjónvarpið er brjálað yfir að á pakkanum í póstkortinu fyrir Makedóniu í fyrri undanriðlinum stóð bara Makedónía en ekki FYR Makedónía. Lettneska söngkonan Aminata er ekki næs í blaðamannaviðtölum og Michele frá San Marínó er með stjörnustæla. Það ætti einhver að gefa vannærða Elnur klúbbsamloku. Kannski bara Friðrik Ómar, Hera og Selma? Makedónísku dansararnir […]
Heiður spjallar meira við David Elder og nú um Söngvakeppnina í ár. David spjallar m.a. um uppáhaldslagið sitt, eftirpartý Söngvakeppninnar og dinner með íslenskri Eurovision stjörnu!
FÁSES.is mætti á fyrsta búningarennsli fyrir semi-final 2 í dag en það var opið blaðamönnum. Við tókum saman það sem verður á skjánum hjá landsmönnum annað kvöld: Hljóðið var á undan sjónvarpsmyndinni – ORF þarf virkilega að fara gyrða í brók ef þeir ætla hreinlega ekki að verða sér til skammar. Meiri skikkjur í skikkjuþema ársins, t.d. hjá Portúgal og […]
Það er brjálað að gera á Partývakt FÁSES og þá er ekki annað að gera en að skella í troðfullan pistil. Partývaktin mætti að sjálfsögðu í opnunarpartý Eurovision á Euroclub síðasta sunnudag. Euroclub í ár er haldið á Ottakringer Brewery (partývaktin kann að meta alla góða bjórinn!). Það segir sitthvað um stærðina á klúbbnum að menn […]
FÁSES.is vill gjarnan vekja athygli á tveimur viðburðum þar sem hægt er að hittast og horfa saman á Eurovision. Stúdentakjallarinn er með EurovisionPartý þar sem hægt er að horfa saman á Eurovision og ræða um keppnina í góðra vina hópi næstkomandi fimmtudags- og laugardagskvöld. Eurotastic á Húrra er Eurovisionpartý sem Styrmir Wurst, Ovi Baldvin og Margrét Rouvas […]