Michael Schulte fulltrúi Þýskalands í Lissabon


Youtube-stjarnan Michael Schulte vann á fimmtudagskvöldið var keppnina Unser Lied Für Lissabon með laginu You Let Me Walk Alone. Hann verður því fulltrúi Þýskalands í úrslitum Eurovision í Lissabon, sem fram fer 12. maí.

Michael er 27 ára gamall frá bænum Dollerup á landamærum Þýskalands og Danmerkur. Lagið er til minningar um föður hans, sem lést fyrir 13 árum. Í atriðinu birtust hjartnæmar myndir af honum og pabba hans í bakgrunninum.

Þýskaland hefur tekið þátt 62 sinnum í Eurovision, oftar en nokkur önnur þjóð. Eina skiptið sem Þjóðverjar hafa ekki verið með í úrslitum var árið 1996 þegar framlagið þeirra komst ekki áfram úr undankeppninni. Þeirri undankeppni var ekki sjónvarpað og hljóðupptökur af lögunum notaðar til að fækka lögunum úr 29 í 23. Í dag eru Þjóðverjar ein af fimm þjóðum sem fara sjálfkrafa beint í úrslit, ásamt Bretum, Frökkum, Spánverjum og Ítölum. Þjóðverjar hafa tvisvar unnið keppnina. Árið 1982 vann hin friðsama Nicole með laginu Ein Bißchen Frieden og árið 2010 vann Lena Meyer-Landrut með laginu Satellite.

Þjóðverjar hafa notað ýmsar aðferðir til að velja framlag sitt í gegnum tíðina. Í fyrra stóð valið til að mynda á milli fimm flytjenda og tveggja laga. Í ár auglýstu Þjóðverjar eftir söngvurum eða hópum til að taka þátt í keppninni. 100 manna dómnefnd skipuð þýskum almenningi og 20 manna alþjóðleg dómnefnd fengu það vandasama hlutverk að velja atriði úr hópi 4000 atriða sem sóttust eftir því að fá að taka þátt í keppninni. Fyrst voru valin 17 atriði sem fengu að taka þátt í vinnustofu á vegum NDR, þar sem farið var í gegnum radd- og dansþjálfun. Eftir vinnustofuna var hópurinn minnkaður í sex atriði, sem tóku þátt í keppninni á fimmtudagskvöldið var. Eftir að atriðin sex höfðu verið valin unnu þau með lagahöfundum og sömdu lögin sem þau fluttu í þættinum.

Hinir atriðin fimm sem stigu á stokk í Berlín og freistuðu þess að verða fulltrúi Þýskalands í Eurovision eru Xavier Darcy, Ivy Quainoo, Ryk, Natia Todua, og voXXclub. Eftir að allir höfðu flutt sín atriði gat almenningur almenningur kosið sitt uppáhald í símakosningu sem hafði þriðjungs atkvæðavægi. Hin áðurnefnda 100 manna dómnefnd réð öðrum þriðjungi og þriðjungur var í höndum 20 manna alþjóðlegrar dómnefndar. Í 20 manna alþjóðlegu dómnefndinni sátu Íslendingarnir Helga Möller og Einar Bárðarson ásamt fleiri þekktum einstaklingum úr Eurovision-heiminum. Til dæmis voru Eurovision-stjörnurnar Ruth Lorenzo frá Spáni, Margaret Berger frá Noregi og hin slóvenska Tinkara Kovač, í dómnefndinni ásamt fleirum.

Eftir að símakosningunni var lokið fór stigagjöfin fram. Dómnefndirnar og símakosningin gátu gefið 5, 6, 7, 8, 10 eða 12 stig. Fyrst fengum við að heyra hverjum 100 manna dómnefndin gaf 5 stig, svo hverjum alþjóðlega dómnefndin gaf 5 stig og Jon Ola Sand, framkvæmdastjóri Eurovision, tilkynnti hver fengi 5 stig frá símakosningunni. Svo fengum við að heyra hver fengi 6 stig og svo koll af kolli. Það varð því nokkuð ljóst hver sigurvegarinn væri þegar að kom að því að gefa 10 stig því Michael hafði engin stig fengið. Michael endaði með að fá alslemmu og fékk öll 12 stigin frá dómnefndum og símakosningunni.

  1. sæti: Xavier Darcy 25 stig

Xavier Darcy er 22 ára gamall Bæverji, ættaður frá Bretlandi og Frakklandi. Xavier flutti lagið Jonah. Xavier gaf út fyrstu plötuna sína á þessu ári og sat hún meðal annars á listanum Top 50 á iTunes.

  1. sæti: RYK 23 stig

Rick Jurthe, eða Ryk eins og hann kallar sig, er 28 ára gamall. Hann flutti lagið You and I. Ryk er menntaður í popptónlist og hefur frá því hann útskrifaðist unnið sem höfundur, söngvari og framleiðandi fyrir mörg mismunandi verkefni, allt frá bíómyndum til skemmtiþátta. Fram til 2015 var hann þekktur undir listamannsnafninu FOXOS.

  1. sæti: Ivy Quainoo 22 stig

Berlínarmærin Ivy Quainoo er 25 ára. Hún flutti lagið House On Fire. Ivy vann The Voice of Germany árið 2012 og er hefur notið mikillar velgengni eftir sigurinn. Í dag býr hún í New York, þar sem hún leggur stund á nám í leiklist.

  1. sæti: voXXclub 21 stig

Í 5. sæti lentu hinir stórskemmtilegu strákar í voXXclub. Strákabandið skipa Florian Claus, Korbinian Arendt, Christian Schild, Michael Hartinger og Stefan Raaflaub (ekki Stefan Raab, las það líka af óskhyggju). Bandið virðist vera sænska útgáfan af Samir & Viktor sem Eurovision-aðdáendur þekkja fyrir þátttöku í sænsku Melodifestivalen. Lagið I mog Di so sem voXXclub má lýsa sem þjóðlagi í nútímastíl.

  1. sæti: Natia Todua 17 stig

Natia Todua er 21 árs gömul, frá Georgíu. Hún flutti til Þýskalands og gerðist au-pair en hafði alltaf dreymt um að lifa af tónlist. Hún tók þátt í síðustu þáttaröð af The Voice of Germany og gerði sér lítið fyrir og vann keppnina. Hún flutti lagið My Own Way.

Á meðan að áhorfendur réðu ráðum sínum og hringdu inn atkvæði sín í símakosningunni, flutti hinn 18 ára gamli Mike Singer lagið sitt Deja Vu. Hann skaust upp á stjörnuhimininn í Þýskalandi þegar hann tók þátt í þýsku útgáfunni af The Voice Kids, þar sem hann var undir handleiðslu Eurovisionstjörnunnar Lenu Meyer-Landrut.

Þá er bara spurning hvort að Michael muni ganga betur en landa sínum Levinu, sem keppti fyrir Þýskaland í Kænugarði. Levina fékk einungis 6 stig, 1 fleiri stig en Spánverjar sem lentu í neðsta sæti.